Viltu styrkja Líf án ofbeldis?

Við vildum óska þess að samtökin okkar þyrftu ekki að vera til. 

En nú er svo komið að Líf án ofbeldis er ekki lengur bara tímabundin hreyfing, heldur erum við að fá daglegar fyrirspurnir frá mæðrum sem í örvæntingu leita ráða og vantar hjálp við að vernda börnin sín frá ofbeldismönnum, sem íslensk yfirvöld gera þeim ókleift að gera. 

Ítrekað úrskurða dómstólar og sýslumenn börn í þvingaða umgengni og forsjá ofbeldismanna, feðra sem eru hættulegir börnum sínum, hafa beitt börnin líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu ofbeldi. Eignaréttur feðra yfir börnum sínum virðist vera meiri en réttur barna til lífs án ofbeldis, og gildandi barnalög um mannréttindi barna eru virt að vettugi í sífellu og endurtekið. Börn á Íslandi fá ekki að njóta vafans og mæðrum er kennt um frásagnir þeirra af ofbeldi. 

Líf án ofbeldis hefur verið rekið í sjálfboðavinnu mæðra og uppkominna barna, þolenda ofbeldis, með ekkert fjármagn hingað til. Hafa stjórnendur lagt sjálfar til það fjármagn sem hefur þurft til að reka starfsemina. 

Vegna stóraukinnar eftirspurnar eftir stuðningi frá mæðrum og börnum í miklum vanda, sjáum við okkur ekki fært að halda áfram nema með auknu fjármagni. Vonir standa til að hægt verði að safna nægilegu fjármagni til að geta sinnt aukinni þörf fyrir stuðning og fræðslu, og að samtökin geti stækkað og sameinað þolendur í þessari stöðu. 

Margt smátt gerir eitt stórt. Við værum gríðarlega þakklát fyrir öll framlög í þágu þolenda ofbeldis. 

Mánaðarlegir styrktaraðilar

Með mánaðarlegum styrkjum hjálpar þú börnum og mæðrum þeirra að fá stuðningsvettvang til að komast úr ofbeldisaðstæðum, og styður við vitundarvakningu um málefni Lífs án ofbeldis. Fylltu út hér að neðan og við sendum þér greiðsluseðil í heimabanka.

Fyrir frjáls framlög:

Kennitala: 510820-0880
Reikningsnúmer: 0133-26-002956

9. gr.
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í styrktarsjóð tengdum málefninu sem er kosið um á aðalfundi. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins.