Líf án ofbeldis átti fund í  dómsmálaráðuneytinu 5.mai

Mánudaginn 5. maí 2025 áttu fulltrúar félagasamtakanna Líf án ofbeldis fund með dómsmálaráðuneytinu um meðferð forsjár- og umgengnismála þar sem heimilisofbeldi og ofbeldi gegn börnum kemur við sögu.

Á fundinum var rætt um ósamræmi í lögum og framkvæmd sem grefur undan öryggi barna og þolenda ofbeldis í nánum samböndum, og lagðar fram tillögur að nauðsynlegum úrbótum í anda Istanbúl-samningsins og ábendinga GREVIO, eftirlitsnefnd Evrópuráðsins með Istanbúl-samningnum.

Fundurinn fór vel fram og lofar góðu um áframhaldandi samtal um málefni þolenda ofbeldis í fjölskyldum. Viðstaddir voru aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Þórólfur Þorsteinsson og sérfræðingar ráðuneytisins ásamt talskonu samtakanna, Kolbrúnu Dögg Arnardóttur, stjórnarformanni og Sigrúnu Sif Eyfeld Jóelsdóttur, meðlimi.

Skjal með efni fundarins og kröfum og ábendingum samtakanna þar að lútandi er hér að neðan.

https://drive.google.com/file/d/1JTMpc_pboBUdu6GmCvv4Nn7EksLwwc8Q/view?usp=sharing

Next
Next

Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um aðfarargerðir og hagsmuni barna.